02.12.2013

Eignar­hlut­ir Arion banka í fé­lögum í óskyldum rekstri

Arion banki á í dag eignarhluti í 22 félögum í rekstri ótengdum bankaþjónustu. Í öllum tilfellum er um að ræða eignarhluti sem bankinn hefur eignast í kjölfar fjárhagslegrar endurskipulagningar fyrirtækja á undanförnum árum.

Stefna bankans er að eiga ekki eignarhluti í félögum í óskyldum rekstri lengur en nauðsyn krefur. Slíkir eignarhlutir fara því í söluferli og eru seldir um leið og unnt er. Þannig hefur Arion banki selt hlut sinn í fjölmörgum félögum á undanförnum árum, t.d. Högum, 10-11, ÍAV, Heklu, BM Vallá, N1 og Pennanum.

Af þeim 22 félögum sem bankinn á í dag eignarhluti í eru sjö félög sem eru ekki með neina starfsemi. Unnið er að slitum þeirra en það ferli getur tekið allt upp í þrjú ár. Tvö af félögunum eru verðbréfasjóðir sem ekki hafa með höndum neina eiginlega starfsemi, hafa aðeins fjárfest í erlendum verðbréfasjóðum og er eignarhlutur bankans í þeim frá 23-24%. Eftir standa þrettán félög í óskyldum rekstri sem bankinn á meira en 10% hlut í.

Félag

Landfestar ehf (100%)

Yfirstandandi eru viðræður um mögulegan samruna við Eik fasteignafélag hf. Meðal þess sem er verið að skoða er hugsanleg skráning hlutafjár hins sameinaða félags í kauphöll.

Landey ehf. (100%)

Eignarhlutur bankans er til sölu og geta áhugasamir fjárfestar haft samband við Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka eða framkvæmdastjóra Landeyjar.

Reitir fasteignafélag hf. (43%)

Unnið er að því að ljúka endurfjármögnun Reita fasteignafélags hf. og er vonast til að henni verði lokið fyrir árslok 2013. Horft er til þess að skrá hlutafé félagsins á Aðalmarkað Nasdaq OMX Iceland hf. vorið 2014.

SMI ehf. (39%)

Í tengslum við fyrirhuguð kaup Eikar fasteignafélags hf. á stærstum hluta eigna SMI ehf. mun bankinn losa um eignarhlut sinn í SMI ehf.

Klakki ehf. (32%)

Unnið er að sölu undirliggjandi eigna Klakka ehf. Þar er stærst um 31% eignarhlutur í Vátryggingarfélagi Íslands hf. en söluhömlur eru á þeim hlut fram í apríl á næsta ári.

Stoðir hf. (16%)

Stærsta eign Stoða hf. er um 29% eignarhlutur í erlenda drykkjarframleiðandanum Refresco Gerber. Auk þess á félagið um 5,5% eignarhlut í Tryggingamiðstöðinni hf. Félagið vinnur að sölu undirliggjandi eigna.

BG12 slhf. (62%)

Félagið var stofnað af Arion banka og nokkrum lífeyrissjóðum og fjárfestingarsjóðum utan um 46% eignarhlut í erlenda matvælaframleiðandanum Bakkavor Group Ltd. Til stendur að selja undirliggjandi eign félagsins á næstu misserum.

GO fjárfesting ehf. (30%)

Félagið heldur utan um rekstur Flúðasveppa og reiknað er með að hluturinn verði seldur til meðeiganda bankans í félaginu.

EAB 1 ehf. (30%)

Eina eign félagsins er um 3,5% eignarhlutur í erlenda drykkjarframleiðandanum Refresco Gerber.

Skipti hf. (38%)

Bankinn eignaðist hlutinn um mitt þetta ár í tengslum við endurskipulagningu félagsins og er stefnt að skráningu félagsins á Aðalmarkað Nasdaq OMX Iceland hf. árið 2014.

HB Grandi hf. (33%)

Tilkynnt hefur verið um fyrirhugaða skráningu félagsins á Aðalmarkað Nasdaq OMX Iceland hf. Bankinn hyggst selja stærstan hluta af eign sinni í aðdraganda skráningar.

Farice ehf. (39%)

Hlutur bankans í Farice ehf. er til sölu og geta áhugasamir fjárfestar haft samband við Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka.

Sementsverksmiðjan ehf. (24%)

Unnið er að því að ljúka aðkomu bankans að eignarhaldi Sementsverksmiðjunnar ehf. og reiknað er með að niðurstaða fáist fyrir lok ársins.

Að auki á Arion banki fullnustueignir, t.d. fasteignir og lóðir, sem í sumum tilfellum eru vistaðar í sérstökum félögum. Slíkar eignir eru einnig seldar eins fljótt og auðið er og er umsjón með sölunni í höndum fasteignasala eða fullnustudeildar bankans.

Líkt og að ofan greinir er unnið að undirbúningi á sölu á þeim eignum sem unnt er að selja og er sú vinna komin langt á veg í mörgum tilfellum. Önnur félög stefna að því að selja undirliggjandi eignir sínar og ljúka þannig starfsemi sinni eða bíða lausnar á sérstökum úrlausnarefnum sem eru ekki á færi bankans eins að leysa.

Samkvæmt framangreindum fyrirætlunum mun eignarhlutum bankans í fyrirtækjum í óskyldum rekstri fækka enn frekar. Bankinn hefur jafnframt viljað stuðla að uppbyggingu hlutabréfamarkaðar hér á landi og eru fyrirhugaðar skráningar félaga á borð við HB Granda hf., Skipti hf. og Reitir fasteignafélag hf. á Aðalmarkað Nasdaq OMX Iceland hf. mikilvægur liður í því.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira