12.12.2008
Eignir Frjálsa lífeyrissjóðsins hafa verið endurmetnar
Frjálsi lífeyrissjóðurinn, sem rekinn er af Eignastýringu Kaupþings, hefur lokið endurmati eigna í samráði við löggilta endurskoðendur. Samkvæmt bráðabirgðaútreikningum þarf ekki að skerða réttindi eða lífeyri sjóðfélaga í samtryggingahluta sjóðsins. Sjóðfélagar eru rúmlega 40 þúsund.
Fjármálakreppan hefur vissulega haft áhrif á lífeyrissjóðinn en aðgerðir Eignastýringar Kaupþings, hafa á undanförnum tveimur árum miðað að því að minnka markvisst áhættu í fjárfestingum. Með auknu vægi ríkisskuldabréfa og kerfisbundinni sölu á hlutabréfum hefur þannig tekist að draga verulega úr áhrifum fjármálakreppunnar á eignasafn Frjálsa lífeyrissjóðsins.
Í kjölfar fjármálakreppunnar hafa allar eignir Frjálsa lífeyrissjóðsins verið metnar upp á nýtt. Ljóst er að kreppan hefur haft nokkur áhrif til lækkunar á virði eigna eins og lesa má úr töflunni hér að neðan. Við endurmatið er varúðar gætt og vonir standa til að niðurfærsla á eignum verði minni en reiknað er með.
Ávöxtun
Nafnávöxtun fjárfestingarleiðanna fyrstu 11 mánuði ársins, eftir að búið er að taka tillit til niðurfærslu, er eftirfarandi:
Nafnávöxtun fyrstu 11 mánuði ársins eftir niðurfærslu (ekki á ársgrundvelli)
Niðurfærsla eigna
Frjálsi 1
-2,2%
-7,3%
Frjálsi 2
12,7%
-6,3%
Frjálsi 3
23,1%
-2,1%
Frjálsi Áhætta
-3,6%
-8,3%
Netbanki Kaupþings
Sjóðfélagar geta séð stöðu yfir inneign sína m.v. ný gengi í Netbanka Kaupþings undir flipunum: Hreyfingar og staða og Heildaryfirlit.
Afturköllun flutningsbeiðna
Þeir sem óska eftir að afturkalla flutningsbeiðnir sínar þurfa að gera það eigi síðar en kl. 16:00 mánudaginn 15. desember, með því að senda tölvupóst á radgjof@kaupthing.is.
Útsending yfirlita
Fréttabréf og yfirlit verða send til sjóðfélaga með uppfærðri stöðu við fyrsta tækifæri.
Mótframlag
Sjóðfélagar eru hvattir til að halda áfram að greiða viðbótariðgjöld í sjóðinn og njóta 2% mótframlags launagreiðanda skv. kjarasamningum.
Aukaársfundur 16. desember
Frjálsi lífeyrissjóðurinn heldur aukaársfund þriðjudaginn 16. desember nk. kl. 17:15 í höfuðstöðvum Kaupþings, Borgartúni 19. Lagðar verða fram tillögur um breytingar á samþykktum sjóðsins og veittar upplýsingar um rekstur og ávöxtun sjóðsins á árinu 2008.
Ítarlegri upplýsingar um Frjálsa lífeyrissjóðinn má nálgast á www.frjalsilif.is
Nánari upplýsingar veitir Ráðgjöf Kaupþings í síma 444 7000.