20.12.2013
Eik fasteignafélag hf. kaupir Landfestar ehf.
Undirritaður hefur verið kaupsamningur milli Eikar fasteignafélags hf. og Arion banka hf. um kaup Eikar á öllu hlutafé í fasteignafélaginu Landfestum ehf. Eik mun greiða fyrir kaupin með nýju hlutafé og verður Arion banki þar með stærsti hluthafi Eikar. Hlutafjárhækkun vegna kaupanna verður lögð fyrir hluthafafund Eikar í janúar næstkomandi en samningurinn eru gerður með fyrirvara um samþykki hluthafafundar Eikar, niðurstöðu áreiðanleikakannana og samþykki Samkeppniseftirlitsins. Á sama tíma var undirritaður viðauki við kaupsamning Eikar á ákveðnum eignum SMI ehf. frá 23. ágúst síðastliðnum.
Eftir kaupin verður Eik eitt af stærstu fasteignafélögum landsins með um eitt hundrað eignir sem telja um 272 þúsund fermetra og verður heildarfjöldi leigutaka yfir fjögur hundruð. Efnahagur sameinaðs félags verður um 60 milljarðar króna þar sem helstu eignirnar verða meðal annars Borgartún 21 og 26, Smáratorg 1 og 3, Glerártorg, Skútuvogur 16, Austurstræti 5, 6, 7 og 17 og Þingholtsstræti 3-5. Meirihluti tekna sameinaðs félags verða frá eignum miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu.
Fyrirhugað er að endurfjármagna Landfestar á næstu mánuðum með útgáfu skuldabréfa. Stefnt er að skráningu hlutafjár Eikar í Kauphöll Íslands eftir að viðeigandi yfirvöld hafa fjallað um kaupin.
Ráðgjafi seljanda var Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka hf. en ráðgjafi kaupanda var H.F. Verðbréf hf.
Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka:
„Með sölu Arion banka á Landfestum til Eikar verður til stærra og öflugra fasteignafélag sem er áhugaverður fjárfestingarkostur á markað. Það er vilji Arion banka að stuðla að uppbyggingu hlutabréfamarkaðar hér á landi og er fyrirhuguð skráning Eikar á Aðalmarkað Kauphallarinnar liður í því. Í aðdraganda skráningar félagsins hyggst bankinn selja af eign sinni í Eik og minnka þar enn frekar þátttöku sína í félögum í óskyldum rekstri.“
Stefán Árni Auðólfsson, stjórnarformaður Eikar:
„Kaup Eikar á Landfestum eru rökrétt skref á leið Eikar að stækkun félagsins, með hagsmuni hluthafa að leiðarljósi og það að markmiði að skrá félagið í Kauphöll. Með kaupunum verður sameinað félag annað stærsta fasteignafélag landsins með virði fasteignasafns um 60 milljarða króna. Félagið verður vel í stakk búið til að nýta sér stærðarhagkvæmni sína og verður áhugaverður kostur fyrir markaðinn þar sem stefnt er að skráning hlutafjár félagsins í Kauphöll."