23.09.2013

Eik fasteigna­félag hf. og Land­fest­ar ehf. hefja samruna­við­ræður

Stjórn Eikar fasteignafélags hf. og Arion banki hf., eigandi Landfesta ehf., hafa ákveðið að hefja viðræður um hugsanlegan samruna Eikar fasteignafélags hf. og Landfesta hf.

Markmið viðræðnanna er að leggja mat á eignarhlutföll í sameinuðu félagi og væntan ábata hluthafa félaganna tengdan samlegðartækifærum félaganna og hugsanlegri skráningu hlutafjár hins sameinaða félags í kauphöll. Í viðræðum aðila er gert ráð fyrir því að Eik fasteignafélag hf. ljúki þeim kaupum fasteigna af SMI ehf., sem félagið hefur skuldbundið sig til.

Ef af samruna félaganna verður, verður hið sameinaða félag eitt sterkasta fasteignafélag landsins og augljós valkostur viðskiptamanna og fjárfesta. Gert er ráð fyrir að niðurstaða viðræðna aðila liggi fyrir innan fjögurra vikna.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira