09.07.2012
Einkaklúbbskortið sent til allra í Vildarþjónustu Arion banka
Viðskiptavinir í Vildarþjónustu Arion banka fá á næstu dögum sent til sín Einkaklúbbskortið og árbók klúbbsins að gjöf. Einkaklúbburinn er einn elsti og öflugasti afsláttar- og fríðindaklúbbur landsins en kortið veitir afslátt hjá yfir 300 fyrirtækjum um allt land. Tilboð og afslátt er nú að finna víðar en nokkru sinni fyrr.
Það er von Arion banka að Einkaklúbbskortið komi að góðum notum en það skiptir okkur máli að gera vel við okkar viðskiptavini.