23.10.2009
Einn af hverjum fimm sjálfboðaliðum Rauða krossins frá Nýja Kaupþingi
Í Rauðakrossvikunni 12.-17. október setti Rauði kross Íslands sér það markmið að safna um 1000 sjálfboðaliðum í Liðsauka og önnur verkefni félagsins um allt land. Almenningur brást mjög vel við þessu átaki og frá 12. október hafa meira en 1000 manns tilkynnt þátttöku sína í Liðsauka Rauða krossins og önnur verkefni félagsins.
Nýja Kaupþing styður átak Rauða krossins, bæði með fjárframlagi og jafnframt hafa tæplega 200 starfsmenn bankans þegar látið skrá sig í Liðsauka.
Liðsauki er hópur venjulegs fólks með mismunandi bakgrunn sem býður sig fram til starfa þegar á reynir. Á neyðartímum getur myndast þannig ástand að Rauði krossinn og almannavarnir þurfi á fjölda fólks að halda við ýmis hjálparstörf. Þá er ómetanlegt að geta leitað til fólks sem hefur gefið kost á sér fyrirfram og leggur fram menntun sína, reynslu og þekkingu í þágu þolenda. Þannig verða öll viðbrögð markvissari og ekki þarf að eyða dýrmætum tíma hjálparstarfsmanna í að þjálfa fólk meðan verkefni bíða tafarlausrar úrlausnar.