14.09.2009
Endurbættar verklagsreglur vegna fyrirtækja í skuldavanda
Nýi Kaupþing banki gefur í dag út endurbættar verklagsreglur fyrir fyrirtæki í skuldavanda. Tilefni slíkra reglna eru þær aðstæður sem ríkja í efnahagslífinu.
Reglurnar mæta kröfum stjórnvalda og eftirlitsaðila um gegnsæ og samræmd vinnubrögð í ákvarðanatöku bankans um fyrirtæki í skuldavanda. Markmið þeirra er að tryggja gagnsæi í ákvörðunartöku bankans og hlutlæga fyrirgreiðslu.
Þá er með reglunum leitast við að takmarka það tjón sem hlotist getur af fjárhagslegum erfiðleikum lífvænlegra fyrirtækja. Hægt er að nálgast reglurnar hér á kaupthing.is.