24.02.2011

Endurút­reikningi 98% er­lendra lána Arion banka lokið

Í netbankanum geta viðskiptavinir skoðað endurútreikninginn og kynnt sér þær fjórar leiðir sem þeim standa til boða og metið hver þeirra hentar þeim best t.d. út frá greiðslubyrði eða heildargreiðslum á lánstíma. Þeir viðskiptavinir sem ekki hafa aðgang að netbankanum munu fá sent bréf frá bankanum með upplýsingum um endurútreikninginn. Viðskiptavinir hafa fram til 28. mars til að velja eina af þeim leiðum sem í boði eru.

Ánægja er meðal viðskiptavina bankans með framsetningu endurútreikningsins og af þeim erlendu lánum sem Arion banki hefur þegar birt hafa um 50% lánþega kynnt sér þá valkosti sem í boði eru og um 18% hafa þegar valið sér þá leið sem þeir telja henta best.

Valkostir sem viðskiptavinum bankans standa til boða eftir endurútreikning erlendra íbúðalána eru verðtryggt eða óverðtryggt lán með jöfnum afborgunum og verðtryggt eða óverðtryggt jafngreiðslulán. Auk þessara valkosta gefst viðskiptavinum kostur á því að halda óbreyttu láni, hvort sem um upphaflegt lán er að ræða eða nýttar hafa verið lausnir bankans.

Í þeim undantekningartilfellum þar sem endurútreikningi er ekki lokið er um að ræða óvenju flókin mál sem þarfnast sérmeðferðar. Aðeins eru það nokkrir tugir mála og mun endurútreikningi þeirra ljúka á allra næstu dögum og verða þau birt viðskiptavinum strax í kjölfarið.

Viðskiptavinum bankans er bent á að allar nánari upplýsingar um þá valkosti sem í boði eru má finna á vef Arion banka og í netbankanum. Eru viðskiptavinir hvattir til að setja sig í samband við þjónusturáðgjafa hafi þeir spurningar varðandi endurútreikninginn eða til að kynna sér aðra kosti.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira