29.12.2010

Endurút­reikningur geng­is­bundinna hús­næð­is­lána

Lög sem kveða á um endurútreikning gengisbundinna húsnæðislána voru samþykkt á Alþingi þann 18. desember s.l. Lögin tóku svo gildi 28. desember og hafa lánastofnanir 60 daga frá gildistöku laganna til að endurútreikna gengisbundin lán til einstaklinga.

Arion banki hefur þegar hafið vinnu við endurútreikning lánanna og mun birta niðurstöður þeirra útreikninga innan tilskilins tíma.

Viðskiptavinum bankans til glöggvunar birtum við hér stutta samantekt á megininntaki laganna:

  • Endurútreikningur fer þannig fram að upphaflegur höfuðstóll skuldar skal vaxtareiknaður með óverðtryggðum vöxtum Seðlabankans.

  • Við endurútreikning skal draga þær fjárhæðir sem inntar hafa verið af hendi frá höfuðstól og áföllnum vöxtum.

  • Sé lán til lengri tíma en fimm ára skal lán, ef lántaki kýs, bera verðtryggða Seðlabankavexti.

  • Ef lántaki velur verðtryggða Seðlabankavexti skulu vaxtakjör endurskoðuð að fimm árum liðnum og er þá lánveitanda (bankanum) heimilt að ákveða vaxtakjör sem eru sambærileg þeim kjörum sem viðskiptavinum hans standa til boða á þeim tíma er endurskoðunin fer fram.

  • Lántaki hefur enn fremur val um að hafa lánið áfram í erlendum myntum. Þá þarf að breyta formi lánsins þannig að það verði gilt erlent lán. Kjósi lántaki svo, falla niður heimildir til leiðréttingar greiðslna og höfuðstóls samkvæmt öðrum ákvæðum laganna.

  • Bankinn skal senda lántaka, sem og ábyrgðarmönnum og/eða veðeigendum, endurútreikning eigi síðar en 60 dögum eftir gildistöku laganna og skal uppgjör hafa farið fram eigi síðar en 90 dögum frá gildistöku laganna.

Þessu til viðbótar vill Arion banki benda viðskiptavinum sínum á að frestur til að sækja um 30% leiðréttingu höfuðstóls erlendra lána gildir aðeins til 31.desember 2010. Kjósi lántaki 30% leiðréttingu höfuðstóls fyrirgerir hann ekki rétti sínum til endurútreiknings samkvæmt lögunum ef sá endurútreikningur er honum hagstæðari.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira