02.11.2012

Endurút­reikningur haf­inn hjá Arion banka

Arion banki hefur hafið endurútreikning tiltekinna ólögmætra gengistryggðra lána sem eiga sér sambærilega greiðslusögu og lán sem nýlegur Hæstaréttardómur í máli Borgarbyggðar fjallaði um. Um er að ræða lán til einstaklinga og minni fyrirtækja þar sem fullnaðarkvittun um greiðslu á vöxtum og höfuðstólsafborgun liggur fyrir samkvæmt skilmálum lánsins, óháð lánstíma.

Ennfremur hefur bankinn ákveðið að endurreikna lán þar sem samið var um greiðslu vaxta eða fastrar fjárhæðar á hverjum gjalddaga.

Arion banki áætlar að innan þriggja mánaða verði endurútreikningi framangreindra lána að mestu lokið og niðurstaðan verði aðgengileg í netbanka viðskiptavina.

Að mati bankans liggur enn ekki fyrir hvernig endurreikna skuli lán sem voru fryst tímabundið hvað varðar bæði vexti og afborgun eða ef vanskilum var bætt við höfuðstól. Arion banki mun engu að síður endurreikna þessi lán fyrir þau tímabil þar sem fullnaðarkvittun vaxtagreiðslu liggur fyrir samkvæmt upphaflegum skilmálum lánanna og mun endurútreikningur þeirra hefjast í beinu framhaldi.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira