02.11.2009
Engar afskriftir gagnvart 1998
Nýi Kaupþing banki hefur ekki afskrifað neinar skuldir hjá eignarhaldsfélaginu 1998, móðurfélagi Haga, og félagið nýtur engrar sérmeðferðar við úrlausn sinna skuldamála. Bankinn vinnur eftir verklagsreglum um úrlausnir á skuldavanda fyrirtækja og unnið er að því að hámarka endurheimtur bankans.