23.06.2009

Engin upp­greiðslu­gjöld hjá Nýja Kaupþingi

Uppgreiðslugjöld á íbúðalánum verða afnumin um óákveðinn tíma hjá Nýja Kaupþingi frá og með fyrsta júlí 2009. Fram að þessu hefur uppgreiðslugjald verið 2% af fjárhæð innborgunar. Bankinn vill með þessu koma til móts við þá viðskiptavini sem vilja greiða hraðar niður húsnæðisskuldir sínar.

Bankinn hefur enn fremur bætt þjónustu sína í netbankanum þannig að nú geta viðskiptavinir sjálfir greitt inná höfuðstól allra lána í netbankanum án milligöngu þjónustufulltrúa. Þetta einfaldar fólki að greiða inná lánin sín.

Finnur Sveinbjörnsson bankastjóri Nýja Kaupþings:
,,Í flestum tilvikum er hagstætt að greiða niður vaxtaberandi skuldir. Það að afnema uppgreiðslugjaldið og gera fólki kleift að greiða inná lán sín í netbankanum auðveldar viðskiptavinum að greiða hraðar niður lán sín."

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira