30.04.2012
Enn fleiri Vildarpunktar
Arion banki hefur fjölgað söfnun vildarpunkta á Platinum Vísa kortum sínum upp í 10 punkta fyrir hverjar 1.000 kr. af innlendri veltu. Þetta gildir hjá söluaðilum sem eru með sölusamning við Valitor. Því eru Platinum kort Arion banka með bestu fríðindi Platinum korta á Íslandi.
Arion banki býður einn banka Platinum e-Vildarkort, en það kort er án efa nú öflugasta Platinum kortið á markaðnum. Á því korti safnast bæði endurgreiðsla og Vildarpunktar.
Öflugar ferðatryggingar fylgja Platinum kortum Arion banka.
Athugið að handhafar Platinum korta sem ferðast með áætlunarflugi Icelandair eiga kost á að fara í Saga Lounge í Keflavík þeim að kostnaðarlausu. Erlendis hafa Platinum korthafar einnig aðgang að Priority pass stofum gegn gjaldi.
Hér er hægt að sækja um Platinum kort og Platinum e-Vildarkort.