30.06.2010

Er­lend íbúða­lán - lausnir í boði til 1. sept­em­ber

Fjármálaeftirlitið og Seðlabanki Íslands sendu í morgun frá sér tilmæli um hvernig fjármálafyrirtæki skuli vaxtareikna lán sem innihalda óskuldbindandi gengistryggingarákvæði, sbr. dóma Hæstaréttar frá 16. júní sl. Þessum tilmælum er ætlað að brúa bilið þangað til dómstólar kveða upp endanlegan dóm í þessum efnum.

Þessar stofnanir hafa nú lýst afstöðu sinni um atriði sem óvissa ríkir um. Eftir stendur að tilmælin fela lánastofnunum að meta hvaða lánssamningar innihaldi óskuldbindandi gengistryggingarákvæði og hverjir ekki. Arion banki er að fara yfir erlenda lánasamninga í kjölfar þessara tilmæla og þess má vænta að þeirri vinnu ljúki í næstu viku. 

Í ljósi þeirrar stöðu sem uppi er hefur Arion banki ákveðið að framlengja lausnir sínar vegna erlendra íbúðalána um tvo mánuði eða til 1. september 2010. Bankinn tekur fram að betri réttur lántakenda er alltaf tryggður. Bankinn ítrekar einnig að engar nauðungarsölur vegna íbúðahúsnæðis verða hjá bankanum á þessu ári

Arion banki vonar fyrir hönd viðskiptavina sinna að úr þessu óvissuástandi verði skorið sem allra fyrst.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira