03.09.2009

Er­lendir fjárfest­ar greiða nú skatt af vaxta­tekj­um

Frá og með 1. september 2009 eru erlendir fjárfestar (þ.m.t. Íslendingar með skattalega heimilisfesti erlendis) ekki undanskildir því að borga skatt af vöxtum á Íslandi. Vextir af innlánsreikningum, fjárfestingarsjóðum, skuldabréfum o.s.frv. eru nú skattskyldir og er skattprósentan 15%-23,5%. Eftirtaldir vextir eru þó undanskildir og ber því ekki að greiða skatt af þeim:

  • Vextir greiddir af Seðlabanka Íslands.

  • Vextir greiddir til erlendra ríkja, opinberra stofnana í erlendu ríki eða alþjóðlegra samtaka með heimilisfesti í erlendu ríki sem eru ekki skattskyldir í viðkomandi ríki.

Allar undantekningar frá skattskyldu sem gilt hafa hingað til hafa nú verið numdar úr gildi. Erlendum fjárfestum gefst kostur á að njóta lægri skattprósentu samkvæmt gildandi tvíhliða skattasamkomulagi milli Íslands og búsetulands skattgreiðanda. Þarf að senda sérstaka umsókn til íslenskra skattayfirvalda til að fá staðfestingu á að ákvæði samnings um skattahlunnindi gildi fyrir viðkomandi.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira