12.10.2009

Ertu til þeg­ar á reyn­ir?

Rauði kross Íslands blæs í lúðra og kynnir innanlandsverkefni félagsins undir yfirskriftinni Ertu til þegar á reynir? vikuna 12.-17. október. Í þessari viku verður safnað sjálfboðaliðum/LIÐSAUKUM til að taka þátt í viðbröðum félagsins við neyð. Óskað er eftir fólki sem er reiðubúið að aðstoða á tímum áfalla þegar tafarlaust getur reynst þörf á að kalla út sjálfboðaliða til að rétta þolendum hjálparhönd.

Nýja Kaupþing styður þetta átak Rauða krossins, en ekki eingöngu með peningastyrk heldur hafa nú á annað hundrað starfsmenn þegar látið skrá sig í LIÐSAUKA.

Þessi LIÐSAUKI Rauða krossins er eins konar varalið sem kallað er út við margvíslegar aðstæður, allt frá náttúruhamförum til persónubundinna áfalla. Þetta er kjörið fyrir fólk sem ekki hefur tíma til að binda sig í einstökum verkefnum Rauða krossins, en vill gefa kost á sér til nýta reynslu sína og þekkingu þegar mikið liggur við. LIÐSAUKINN er viðbót við þá hundruð sérþjálfuðu sjálfboðaliða Rauða krossins sem eru tilbúnir að tryggja velferð almennings.

Leitað er eftir fólki með margvíslegan bakgrunn því verkefnin eru jafn fjölbreytt og aðstæðurnar sem við lendum í. Hlutverk sjálfboðaliða í LIÐSAUKA getur til dæmis verið símsvörun, túlkun af erlendum tungumálum, þýðingar, barnapössun, skráning, matreiðsla, eða sálrænn stuðningur – og margvísleg verkefni í Rauðakrosshúsinu sem er miðstöð fyrir fólk sem orðið hefur fyrir áföllum í kjölfar efnahagshrunsins. Nánari upplýsingar fást á www.redcross.is.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira