14.03.2013

Far­sælt sam­starf Arion banka og Íþrótta­sam­bands fatl­aðra fram­lengt

Arion banki og Íþróttasamband fatlaðra undirrituðu samstarfssamning sem felur í sér að Arion banki verður áfram einn af aðalbakhjörlum sambandsins. Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka og Sveinn Áki Lúðvíksson, formaður Íþróttasambands fatlaðra skrifuðu undir styrktarsamninginn sem gildir fram yfir Ólympíumótið í Brasilíu árið 2016. Allt frá stofnun Íþróttasambands fatlaðra 1979 hefur Arion banki og fyrirrennarar hans verið einn stærsti styrktaraðili íþrótta fatlaðra hér á landi.

Sveinn Áki Lúðvíksson, formaður Íþróttasambands fatlaðra:
„Það er mikil ánægja með stuðning Arion banka: ,,Við Íslendingar höfum eignast fjölda ólympíu- og heimsmeistara í íþróttum fatlaðra og stuðningurinn nú hvetur okkur til áframhaldandi afreka.“

Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka:
„Það er heiður að fá tækifæri til að taka þátt í að efla íþróttir fatlaðra hér á landi. Við teljum mikilvægt að halda áfram þessu góða samstarfi við Íþróttasamband fatlaðra og óskum þeim velfarnaðar í því starfi sem framundan er. Það var sérstaklega mikið ánægjuefni að fylgjast með Ólympíumótinu síðasta sumar og árangur keppendanna góður og ekki á hverjum degi sem gullið skilar sér heim.“

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira