03.12.2014

Fasteigna­skýrsla Greining­ar­deild­ar Arion banka 2014: Bóla eða bjart­ar horf­ur?

Greiningardeild Arion banka stóð fyrir morgunfundi 3. desember þar sem helstu niðurstöður nýrrar fasteignaskýrslu deildarinnar voru kynntar. Skýrslan ber heitið: Bóla eða bjartar horfur? Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka, opnaði fundinn en Regína Bjarnadóttir, forstöðumaður greiningardeildar, og Anna Hrefna Ingimundardóttir, hagfræðingur í greiningardeild, fluttu erindi.

Íbúðafjárfesting er að taka við sér á ný eftir mikið frost í kjölfar fjármálakreppunnar og hafa margir velt því fyrir sér hvort verið sé að blása í nýja bólu á fasteignamarkaði. Þótt miklar verðhækkanir hafi átt sér stað á síðasta ári telur greiningardeild bankans svo ekki vera, enda hafa verðhækkanir á fasteignamarkaði nokkurn veginn fylgt umsvifum í hagkerfinu. Einnig er byggingarkostnaður enn nokkuð hár í samanburði við fasteignaverð.

Greiningardeild Arion banka spáir 7-8% nafnhækkun fasteignaverðs á ársgrundvelli á árunum 2015-2016, en að smám saman hægi á og að árshækkunin muni nema 6-7% á árinu 2017.

Á fundi greiningardeildar var einnig fjallað um horfur á leigumarkaði og bar erindið yfirskriftina: Er leigumarkaðurinn að mettast? Greiningardeild Arion banka telur að teikn séu á lofti um að svo sé, en hlutfall heimila á leigumarkaði lækkaði árið 2013 í fyrsta sinn frá árinu 2007. Eftirspurn aðþrengdustu hópanna fjárhagslega, fólks á aldrinum 25-34 sem og tekjulægstu 20%, virðist vera að minnka. Mælikvarðar á framtíðareftirspurn gefa einnig til kynna að eftirspurn sé að fara minnkandi, enda hafa verðhækkanir verið töluverðar undanfarin ár.

Glærur sem fyrirlesarar studdust við má sjá með því að smella á hlekkina:

Bóla eða bjartar horfur? – Regína Bjarnadóttir, forstöðumaður greiningardeildar
Er leigumarkaðurinn að mettast? – Anna Hrefna Ingimundardóttir, hagfræðingur í greiningardeild

Skýrsluna í heild má nálgast hér: Fasteignaskýrsla Greiningardeildar Arion banka 2014.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira