21.03.2013
FBSH og Arion banki í samstarf
Aðalfundur Flugbjörgunarsveitarinnar á Hellu var haldinn í febrúar síðastliðnum, auk hefðbundinna aðalfundastarfa var undirritaður samstarfssamningur milli Arion banka og Flugbjörgunarsveitarinnar þar sem bankinn styrkir björgunarsveitina um 900.000 krónur á þremur árum.
„Flugbjörgunarsveitin á Hellu vinnur hér mjög þarft starf og málefnið er reglulega gott. Við erum stolt af því að styrkja Flugbjörgunarsveitina sem hefur í nægu að snúast vegna tíðra útkalla,“ segir Björn Sigurðsson, útibússtjóri Arion banka á Hellu.
Þrír félagar sveitarinnar voru jafnframt gerðir að heiðursfélögum fyrir óeigingjarnt starf í þágu sveitarinnar. Heiðursfélagarnir eru, Einar Brynjólfsson (gekk í sveitina 1972), Valur Haraldsson (gekk í sveitina 1957) og Þröstur Jónsson (gekk í sveitina 1968). Taka þeir allir virkan þátt í starfi sveitarinnar en í dag.