01.10.2013

Félags­stofn­un stúd­enta flyt­ur banka­viðskipti sín til Arion banka

Félagsstofnun stúdenta hefur flutt bankaviðskipti sín til Arion banka og var nýverið undirritaður samstarfssamningur þess efnis. Samningurinn tekur til almennrar viðskiptabankaþjónustu, framkvæmdafjármögnunar, einkabankaþjónustu og margs konar markaðssamstarfs. Mun bankinn meðal annars verða bakhjarl fjölbreyttra viðburða á vegum Félagsstofnunar stúdenta fyrir stúdenta við Háskóla Íslands.

Félagsstofnun stúdenta tók ákvörðun um að flytja viðskipti sín til Arion banka að loknu tilboðsferli þar sem Arion banki bauð hagstæðustu kjörin.

Guðrún Björnsdóttir, framkvæmdastjóri Félagsstofnunar stúdenta:

„Rekstur Félagsstofnunar stúdenta er nokkuð umfangsmikill. Töluverð uppbygging hefur átt sér stað á síðustu árum og er stefna okkar að halda henni áfram enda ljóst að þörfin er fyrir hendi. Í dag rekum við Stúdentagarða, Bóksölu stúdenta, Bókakaffi stúdenta, Leikskóla stúdenta, Kaffistofur stúdenta, Hámu og Stúdentakjallarann. Markmið okkar er að bjóða stúdentum við Háskóla Íslands góða þjónustu á góðum kjörum og tryggja öruggan rekstrargrundvöll stofnunarinnar. Góð kjör á allri fjármálaþjónustu og góður samstarfsaðili á sviði bankaviðskipta er mikilvæg forsenda í öllu okkar starfi. Það er ánægjulegt að finna fyrir þeim áhuga sem Arion banki sýnir starfsemi okkar og finna fyrir vilja innan bankans til að taka þátt í ýmsum verkefnum okkar sem ná út fyrir hefðbundin bankaviðskipti.“

Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka:

„Það er ekki annað hægt en að dást að því mikla starfi sem Félagsstofnun stúdenta hefur áorkað á undanförnum árum og þeirri miklu uppbyggingu sem átt hefur sér stað innan háskólasamfélagsins. Það eru ekki síður spennandi tímar framundan hjá Félagsstofnun stúdenta og okkur mikil ánægja að vera samstarfsaðili FS í þeim verkefnum sem framundan eru.“

Meðfylgjandi er mynd sem tekin var við undirritun samstarfssamningsins í Stúdentakjallaranum.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira