22.06.2009

Ferða­félag barn­anna stofn­að í dag

Það tók undir í hlíðum Esjunnar þegar 50 leikskólabörn sungu þar á stofnfundi Ferðafélags barnanna sem Ferðafélag Íslands stofnaði í dag. Aðalbakhjarl hins nýja félags er Nýja Kaupþing. Leikskólabörnin gengu upp á stöð 3 á Esjunni og fengu bakpoka, handklæði og pennaveski frá bankanum að því loknu.

Markmið Ferðafélags barnanna er að fá börn á aldrinum 0-12 ára til að upplifa töfra náttúrunnar. Boðið verður uppá margskonar ferðir og uppákomur sem verða sniðnar að þörfum barnanna. Má þar nefna styttri fjöru- og fjallaferðir fyrir yngstu börnin, ratleiki í náttúrunni fyrir börn á aldrinum 6- 9 ára og dagsferðir í Þórsmörk eða Landmannalaugum fyrir börn á aldrinum 10-12 ára.

Ferðafélagi barnanna er ætlað að stuðla að aukinni samveru fjölskyldunnar og heilsu- og náttúruvernd.

Þann 18. júlí mun Ferðafélagið halda uppá ,,Heiðmerkurdag" þar sem markmiðið er að kynna Heiðmörkina sem vin innan höfuðborgarinnar. Á þeim degi verður Ferðafélag barnanna í hávegum og verða ýmsar uppákomur haldnar fyrir börnin í tilefni að því.

Leikskólabörnin tóku lagið eftir að Ólafur Örn Haraldsson forseti Ferðafélags Íslands og Helga Þóra Eiðsdóttir forstöðumaður markaðsdeildar undirrituðu samstarfssamning um Ferðafélag barnanna.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira