21.08.2015

Fjárfest­ar kaupa um 5% hlut í Sím­anum

Arion banki hefur selt hópi fjárfesta um 5% hlut í Símanum, en stefnt er að skráningu Símans í kauphöll nú í haust. Hópurinn samanstendur af fjárfestum frá fimm löndum ásamt nokkrum af stjórnendum Símasamstæðunnar. Fyrir hópnum fer Bertrand Kan, hollenskur fjárfestir með áratuga reynslu af fjárfestingarstarfsemi á sviði fjarskipta, en það var Orri Hauksson, forstjóri Símans, sem átti frumkvæði að því að hópurinn var myndaður.

Eftir söluna á Arion banki um 33% í Símanum. Nú í haust er stefnt að því að hlutabréf í Símanum verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland og í aðdraganda þess áformar bankinn að minnka eignarhlut sinn í félaginu frekar með almennu útboði.

Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka:
„Það er gleðilegt að sjá áhuga fjárfesta á Símanum nú í aðdraganda skráningar félagsins í kauphöll. Okkur þykir jákvætt að sjá bæði erlenda og innlenda fjárfesta í þeim hópi sem nú kaupir hlut í Símanum og jafnframt að stjórnendur samstæðunnar séu orðnir hluthafar, en það sýnir trú þeirra á félaginu og framtíð þess.“

Orri Hauksson, forstjóri Símans:
„Það er stórt skref fyrir okkur í stjórnendahópnum að taka þátt í eignarhaldi félagsins. Við höfum trú á fjárfestingunni til lengri tíma, teljum að hægt sé að auka verðmæti félagsins og erum sérstaklega ánægð með að fá til liðs við okkur nýja fjárfesta sem í fortíð og nútíð hafa náð að skapa ríkulega ávöxtun úr fjarskiptaverkefnum víðs vegar um heim.“

Bertrand Kan:
„Það er mjög spennandi að fá að taka þátt í að skrifa næsta kafla í sögu Símans, nú þegar skráning félagsins á hlutabréfamarkað er handan við hornið. Ég kynntist félaginu og íslenskum fjarskiptamarkaði fyrst fyrir um áratug þegar ég hafði með höndum það verkefni að leiða söluferli Símans fyrir hönd Morgan Stanley. Heimurinn hefur tekið miklum breytingum síðan þá, en ég vona að alþjóðleg reynsla mín og annarra fjárfesta í þessum hópi geti komið fyrirtækinu að notum í framtíðinni.“

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira