18.03.2009
Fjárfestingar Frjálsa lífeyrissjóðsins. Engar athugasemdir Fjármáleftirlitsins
Vegna frétta um að Fjármálaeftirlitið hafi eftir rannsókn vísað málum fimm lífeyrissjóða í rekstri og eignastýringu Landsbankans til sérstaks saksóknara vill Frjálsi lífeyrissjóðurinn, sem er í rekstri Nýja Kaupþings taka fram:
Fjármálaeftirlitið hefur lokið sambærilegri skoðun á Frjálsa lífeyrissjóðnum fyrir árið 2008. Skoðunin leiddi ekkert aðfinnsluvert í ljós í fjárfestingum sjóðsins.
Frjálsi lífeyrissjóðurinn hefur á vefsíðu sjóðsins birt nákvæma sundurliðun á fjárfestingum sjóðsins fyrir og eftir bankahrunið.
Nafnávöxtun fjárfestingarleiða Frjálsa lífeyrissjóðsins árið 2008 var eftirfarandi:
Frjálsi 1:
-4,9%
Frjálsi 2:
12,3%
Frjálsi 3:
23,6%
Frjálsi Áhætta:
-7,4%
Tryggingadeild:
-7,6%
Samkvæmt tryggingafræðilegri stöðu sjóðsins um sl. áramót þarf ekki að skerða réttindi eða lífeyri sjóðfélaga í tryggingadeild sjóðsins.