20.10.2015

Fjár­festingar í sprota- og vaxta­fyrir­tækj­um

Arion banki og Ungir fjárfestar efndu til ráðstefnunnar Fjárfestingar í sprota- og vaxtafyrirtækjum þann 6. október síðastliðinn.

Undanfarin misseri hefur áhugi viðskiptalífsins og almennings á frumkvöðlum og sprotafyrirtækjum aukist umtalsvert. Á ráðstefnunni var farið yfir hvernig stuðningsumhverfið hefur vaxið og dafnað síðustu ár og hvernig fjárfestar vinna með frumkvöðlum í þeirri vegferð sem fyrirtækjarekstur er á fyrstu stigum.

Ráðstefnan var vel sótt af fólki á öllum aldri víðsvegar að úr samfélaginu.

Eftirfarandi fyrirlesarar voru með erindi:

Einar Gunnar Guðmundsson, forsvarsmaður Arion banka í nýsköpun. Einar Gunnar ræddi um breytingar í fjármögnunarumhverf sprota á Íslandi og hvernig Arion banki hefur fjárfest í sprotum í gegnum Startup Reykjavík og Startup Energy Reykjavík og hvernig þeim fyrirtækjum hefur vegnað hingað til.

Magnús Ingi Óskarsson, frumkvöðull og englafjárfestir. Magnús Ingi ræddi um hvernig hann vinnur og eftir hverju hann leitar í samstarfi sínu við sprotafyrirtæki.

Svana Gunnarsdóttir, sjóðsstjóri hjá Frumtaki. Svana ræddi um hvernig framtaksfjárfestir (e. venture capital investor) horfir á sprotafyrirtæki og hvernig vinnu Frumtaks er háttað.

Alexander Jensen Hjálmarsson, formaður Ungra fjárfesta og Margrét Sveinsdóttir, framkvæmdastjóri Eignastýringar Arion banka opnuðu fundinn.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira