11.04.2013
Fjárfestingar kvenna ræddar í Arion banka
Húsfylli var í höfuðstöðvum Arion banka í Borgartúni í gær á vel heppnuðum fundi um fjárfestingar í samstarfi við Félag kvenna í atvinnulífinu. Markmið fundarins var að efla umræðu um fjárfestingar kvenna, hvort heldur sem eru beinar fjárfestingar, fjárfestingar á markaði eða í eignastýringu.
Höskuldur Ólafsson, bankastjóri Arion banka, setti fundinn og ræddi meðal annars framlag bankans til upplýstrar umræðu. Má þar nefna starfsemi sjálfstæðrar greiningardeildar bankans auk fjölmargra viðburða sem Arion banki stendur fyrir eins og Kauphallardaga, fræðslufyrirlestra Jóns Jónssonar, námskeiða um fjármál og fleiri viðburði. Hann lagði jafnframt áherslu á nauðsyn þess að fjárfestar væru vel upplýstir í sinni ákvarðanatöku.
Dagskrá fundarins var svo með þeim hætti að Ásdís Kristjánsdóttir, forstöðumaður greiningardeildar Arion banka, gerði grein fyrir horfum í efnahagsmálum og Páll Harðarson, forstjóri Kauphallarinnar, fór yfir breytta ásýnd á mörkuðum. Virkni á hlutabréfamarkaði hefur aukist margfalt frá síðastliðnu hausti og standa íslensku félögin vel í samanburði við norræn félög að sögn Páls en hann sagði jafnframt að hlutabréfaeign kvenna í skráðum félögum í Kauphöll væri eingöngu 29%. Margrét Sveinsdóttir, framkvæmdastjóri Eignastýringarsviðs Arion banka, lauk fundinum og tók meðal annars undir orð Höskuldar með því að leggja áherslu á að farsælar ákvarðanir fjárfesta byggist á áhuga þeirra, tíma, þekkingu og aga.
Meðfylgjandi eru nokkrar myndir frá fundinum.