22.10.2010

Fjárhags­legri endur­skipulagningu Ölgerðar­innar lokið

Arion banki hefur í samstarfi við Auði Capital og Ölgerðina lokið fjárhagslegri endurskipulagningu Ölgerðarinnar. Hluti af endurskipulagningunni er fjárfesting Auðar I fagfjárfestasjóðs og meðfjárfesta í Ölgerðinni. Fjárfestar leggja þannig til nýtt hlutafé og eignast fyrir vikið 36% hlut í félaginu. Arion banki eignast 20% hlut við skuldbreytingu. Meirihluti Ölgerðarinnar er því kominn í hendur nýrra hluthafa.

Aðrir hluthafar eru OA ehf., félag Andra Þórs Guðmundssonar forstjóra og Októ Einarssonar stjórnarformanns, og F-13 sem er félag í eigu fjögurra framkvæmdastjóra Ölgerðarinnar.
Ráðist var í fjárhagslega endurskipulagningu Ölgerðarinnar þar sem eiginfjárstaða félagsins var orðin neikvæð, sökum umtalsverðrar hækkunar höfuðstóls erlendra lána. Þrátt fyrir þunga greiðslubyrði félagsins var Ölgerðin í skilum með öll sín lán.

Arion banki leitast við með fjárhagslegri endurskipulagningu að hámarka endurheimtur sínar og fór endurskipulagningin fram samkvæmt verklagsreglum bankans, sem m.a. kveða á um að stefnt skuli að endurskipulagningu í samvinnu við stjórnendur og eigendur. Þeir þurfa þó að hafa fram að færa verðmæti til rekstrarins sem tryggja bankanum betri endurheimtur, sýna samstarfsvilja og njóta trausts. Í tilviki Ölgerðarinnar voru þessi skilyrði fyrir hendi.

Helstu atriði fjárhagslegrar endurskipulagningar Ölgerðarinnar:

  • Auður I og meðfjárfestar fjárfesta í Ölgerðinni og leggja félaginu til nýtt hlutafé. Nýtt hlutafé kemur að öllu leyti til lækkunar skulda félagsins. Nýir fjárfestar eignast þannig 36% hlut í Ölgerðinni. Kaupverð er trúnaðarmál.

  • Arion banki breytir hluta skulda Ölgerðarinnar við bankann í hlutafé og eignast 20% hlut í félaginu.

  • Skuldir Ölgerðarinnar fyrir fjárhagslega endurskipulagningu námu um 9,5 milljörðum kr., þar af voru tæp 75% í erlendri mynt. Að lokinni endurskipulagningu verða öll lán félagsins í íslenskum krónum.

  • Heildarskuldir félagsins eftir fjárhagslega endurskipulagningu verða um 7,2 milljarðar. Lækkun skulda félagsins er tilkomin vegna inngreiðslu nýs hlutafjár og skuldbreytingar Arion banka í hlutafé.

  • Hluti endurskipulagningarinnar snýr að fasteignum Ölgerðarinnar sem eru í eigu G7 fasteignafélags. Skuldir G7 fasteignafélags nema 4,6 milljörðum. Félagið var fyrir endurskipulagningu í eigu Ölgerðarinnar, sem átti 51% hlut, og Arion banka, sem átti 49% hlut. Við endurskipulagninguna tekur Arion banki yfir eignahlut Ölgerðarinnar og eignast þar með allt hlutafé G7 fasteignafélags. Ölgerðin mun leigja fasteignirnar af G7 á markaðskjörum.

Um Ölgerðina

Ölgerðin er eitt af elstu iðnfyrirtækjum á Íslandi, stofnað 1913. Hjá fyrirtækinu starfa um 300 starfsmenn. Fyrirtækið framleiðir mörg af elstu og sterkustu vörumerkjum landsins og flytur inn og dreifir fjölbreyttu úrvali vörumerkja frá birgjum um allan heim. Árið 2007 keyptu Októ Einarsson og Andri Þór Guðmundsson meirihluta í Danól og Ölgerðinni á móti Kaupþingi banka. Fyrirtækin voru sameinuð í kjölfarið. Fjórir framkvæmdastjórar keyptu síðan hlut Kaupþings í sameinuðu félagi.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira