29.09.2010

FJÁRmál hefja göngu sína á ný

FJÁRmál eru fyrirlestraröð og fræðsluátak á vegum Arion banka sem unnið er í samstarfi við Stofnun um fjármálalæsi við Háskólann í Reykjavík. Breki Karlsson er forstöðumaður stofnunarinnar og leiðir hann fræðslufundi FJÁRmála ásamt sérfræðingum Arion banka.

Fyrirlestraröðin var fyrst í boði síðastliðinn vetur en hefur göngu sína á ný 29. september.

Tilgangurinn með FJÁRmálum er að koma til móts við þarfir viðskiptavina fyrir haldgóðar upplýsingar, fræðslu og örugga leiðsögn í nýju efnahagsumhverfi. Arion banki vill stuðla að bættu fjármálalæsi almennings með FJÁRmálum auk þess sem bankinn er bakhjarl Stofnunar um fjármálalæsi.

Boðið er upp á táknmálstúlkun fyrir þá fræðslufundi sem haldnir eru í höfuðstöðvum bankans í Borgartúni 19. Athugið að þátttakendur verða að skrá sig með viku fyrirvara til að hægt sé að tryggja táknmálstúlk. Einnig bendum við á að aðgengi fyrir fatlaða er mjög gott í höfuðstöðvum bankans.

Það eru allir velkomnir á fræðslufundi FJÁRmála, aðgangur er ókeypis og fer skráning fram á vef bankans, í þjónustuveri eða útibúum.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira