14.12.2009

FJÁRmál - vel heppn­aður kynning­ar­fund­ur um lána­lausnir

FJÁRmál stóðu fyrir kynningarfundi á miðvikudaginn síðastliðinn um hinar nýju lánalausnir bankans. Þar fór Helgi Bragason lánastjóri yfir þær lausnir sem standa viðskiptavinum með íbúðalán til boða.

Breki Karlsson forstöðumaður Stofnunar um fjármálalæsi flutti erindi á fundinum þar sem hann skoðaði lausnirnar gagnrýnum augum. Yfir 100 manns skráðu sig til leiks og tókst fundurinn afar vel. Viðskiptavinir gátu síðan fengið ráðgjöf hjá lánasérfræðingum úr útibúum eftir fundinn.

FJÁRmál er vettvangur fræðslu sem bankinn stendur fyrir. Fljótlega eftir áramót verður kynnt fjölbreytt dagskrá gagnlegra fyrirlestra, funda og námskeiða svo fylgist vel með.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira