07.10.2009
Fjármálafræðsla byggð á hugmyndum viðskiptavina
Undanfarið hefur verið auglýst eftir hugmyndum viðskiptavina fyrir ný fjármálanámskeið bankans. Mikill fjöldi hugmynda hefur borist og greinilegt að mikil þörf er á fræðslu um fjármál í samfélaginu. Ánægjulegt er hversu vel framsettar og ígrundaðar hugmyndir viðskiptavinir hafa sent og munu námskeið bankans byggjast á þeim. Fyrsta námskeiðið verður haldið á næstu dögum en þar verður komið á móts við ósk margra um fræðslu um fjármál heimilisins. Á námskeiðinu verður t.d. útskýrt á aðgengilegan hátt hvað raunvextir, nafnvextir, verðbólga og verðtrygging eru, auk umfjöllunar um sparnað og mismunandi tegundir lána.
Umsjón fjármálanámskeiðanna verður í höndum starfsfólks bankans en fyrirlesari á fyrsta námskeiðinu er Bernhard Þór Bernhardsson útibússtjóri í Borgarnesi. Með því að bjóða uppá fjármálanámskeið vill Nýja Kaupþing undirstrika mikilvægi þess að komið sé til mótis við þarfir viðskiptavina við breyttar aðstæður í efnahagsumhverfinu. Við hvetjum alla til að senda okkur hugmyndir um fjármálafræðslu hér á Kaupthing.is.