14.08.2009
Fjármögnun Nýja Kaupþings banka hf. lokið
Fjármögnun Nýja Kaupþings hf. hefur verið tryggð af hálfu ríkisins. Með þessu hefur verið skotið styrkum stoðum undir rekstur bankans og lausafjárstaða hans og eiginfjárhlutföll eru traust.
Hluthafafundur Nýja Kaupþings hf. samþykkti í dag hækkun hlutafjár bankans og hefur ríkissjóður skráð sig fyrir hlutunum. Heildarhlutfé bankans er nú 72 milljarðar króna og eiginfjárhlutfall er 12%.
Fjármögnun bankans er samkvæmt samkomulagi ríkisins og skilanefndar Kaupþings sem kynnt var þann 20. júlí síðastliðinn.
Finnur Sveinbjörnsson bankastjóri Nýja Kaupþings:
,, Endurfjármögnun bankans markar nýtt upphaf. Við getum nú einbeitt okkur að því að halda áfram að aðstoða heimili og fyrirtæki í þeirri endurreisn sem liggur fyrir."