13.08.2009

Fjöl­skyldu­há­tíð Ferða­félags barn­anna í Heið­mörk

Ferðafélag barnanna stendur fyrir fjölskylduhátíð í Heiðmörk laugardaginn 15. ágúst. Hátíðin er haldin til að gefa börnum tækifæri til að upplifa töfra náttúrunnar og kynnast þessu stórkostlega útivistarsvæði í nágrenni höfuðborgarsvæðisins. Hátíðin hefst í Þjóðhátíðargarðinum í Heiðmörk kl. 14:00 og stendur til 16:00 og er öllum opin.

Nýja Kaupþing sem er aðalbakhjarl Ferðafélags barnanna hvetur viðskiptavini sína til að mæta með börnum sínum.

Fjölbreytt dagskrá er í boði og hefst hún í Þjóðhátíðarlundinum í Heiðmörk kl. 14:00 þar sem Ingó úr Veðurguðunum kemur öllum í stuð. Fararstjórar Ferðafélagsins verða með gönguferðir um svæðið og íþróttakennarar sjá um leiki fyrir börnin og kynna nýjan ratleik. Þá mun Sölufélag garðyrkjumanna gefa gestum að smakka nýupptekið íslenskt grænmeti.

Klukkan 14:30 verður sett fyrsta Íslandsmeistaramótið í gúrkuáti , en þar verður keppt um það hver er fljótastur að torga heilli gúrku. Sigurvegarinn hlýtur titillinn Íslandsmeistari í gúrkuáti 2009. Skráning á mótið fer fram á staðnum.

Ferðafélag barnanna var stofnað 22. júní síðastliðinn af Ferðafélagi Íslands og er markmið félagsins að stuðla að heilbrigðri útivist fyrir fjölskyldur í náttúru landsins. Félagið leggur áherslu á að bjóða upp á ferðir og uppákomur á forsendum barnanna með það fyrir augum að víkka sjóndeildarhring þeirra og upplýsa um heilbrigða lífshætti úti í náttúrunni.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira