11.01.2010
FME veitir dótturfélagi Kaupþings banka leyfi til að fara með virkan eignarhlut í Arion banka
Fjármálaeftirlitið (FME) veitti í dag dótturfélagi Kaupþings banka hf., Kaupskilum ehf., leyfi til að fara með virkan eignarhlut í Arion banka fyrir hönd Kaupþings banka. Leyfið er veitt í kjölfar samnings skilanefndar Kaupþings og íslenska ríkisins um eignarhald á Arion banka. Samningurinn var háður samþykki FME og Samkeppniseftirlitsins. Með ákvörðun sinni 23. desember sl. samþykkti Samkeppniseftirlitið yfirtöku Kaupþings á Arion banka að ákveðnum skilyrðum uppfylltum.
Leyfið er veitt með skilyrðum um ráðstafanir er lúta að fjárhagslegum styrk Kaupþings banka, eignarhaldi Kaupþings, eftirlitshagsmunum og stefnumiðum eigenda.
Nánari upplýsingar má sjá í tilkynningu FME hér.