01.06.2010

Form­leg banka­stjóra­skipti í Arion banka 1. júní

Í dag þriðjudaginn 1. júní, fóru formlega fram bankastjóraskipti í Arion banka. Finnur Sveinbjörnsson lét af starfi bankastjóra en við starfinu tók Höskuldur H. Ólafsson.

Höskuldur var forstjóri Valitors áður en hann tók við stjórnartaumum bankans í dag.

Finnur hefur gegnt starfi bankastjóra Arion banka, áður Nýja Kaupþing, frá október 2008 en fram að því var hann formaður skilanefndar gamla Kaupþings. Finnur tók við rekstri bankans á örlagaríkum tíma en hefur tekist að byggja bankann upp og skilar honum nú af sér í hendur nýs bankastjóra.

Stjórn og starfsfólk Arion banka þakkar Finni vel unnin störf og óskar honum góðs gengis. Stjórn og starfsfólk bjóða á sama tíma Höskuld H. Ólafsson innilega velkominn til starfa.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira