10.10.2011
Fræðslu- og kynningarfundir um íbúðalán á landsbyggðinni
Fræðslu- og kynningarfundir um íbúðalán verða haldnir á landsbyggðinni næstu daga. Fundirnir verða í Borgarnesi, Egilsstöðum og á Selfossi.
Breki Karlsson, forstöðumaður stofnunar um fjármálalæsi mun fara yfir það sem vert er að hafa í huga við fjármögnun íbúðakaupa og útibústjórar á hverjum stað kynna ný íbúðalán Arion banka.