31.07.2009

Fram­lenging yfir­töku­til­boðs

Lur Berri Iceland ehf. hefur borist ákvörðun Fjármálaeftirlitsins um að framlengja gildistíma yfirtökutilboðs Lur Berri Iceland ehf. til hluthafa Alfesca hf. dagsettu 25. júní 2009 um 18 daga frá og með 30. júlí 2009 eða til kl. 16:00 þann 17. ágúst 2009, sbr. 6. mgr. 103. gr. laga nr. 107/2008 um verðbréfaviðskipti. Ákvörðun Fjármálaeftirlitsins um framlengingu yfirtökutilboðsins er tekin vegna kröfu Rekstrarfélags Nýja Kaupþings banka hf. vegna sjóðanna Kaupthing ÍS-5, Kaupþing ÍS-15 og ICEQ verðbréfasjóður, Gildis lífeyrissjóðs, Sameinaða lífeyrissjóðsins og Stafa lífeyrissjóðs sem eru hluthafar í Alfesca hf. og eiga samtals 679.756.524 hluti í Alfesca hf. eða 11,57% hlutafjár. Sömu aðilar hafa jafnframt óskað eftir að haldinn verði hluthafafundur í Alfesca hf. þar sem lagt er til að yfirtökutilboðið verði rætt, ásamt fyrirætlunum um afskráningu og mati á verðmæti hlutabréfa Alfesca hf. Ákvörðun Fjármálaeftirlitsins má finna á heimasíðu stofnunarinnar, http://www.fme.is.

Vegna framlengingar yfirtökutilboðsins frestast uppgjör á viðskiptum við þá sem samþykkt hafa yfirtökutilboðið þannig að það verður í síðasta lagi 5 dögum eftir lok gildistímans, sem nú er 17. ágúst 2009, sbr. 7. mgr. 103. gr. laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira