29.09.2011

Fram­taks­sjóður Ís­lands kaup­ir 39% hlut í N1 af Arion banka

Framtakssjóður Íslands hefur keypt um 39% hlutafjár í verslunar- og þjónustufyrirtækinu N1 af Arion banka hf. Þar af er 10% hlutur sem fyrrum skuldabréfaeigendur N1 eiga kauprétt á síðar. Áður hafði Framtakssjóðurinn keypt 15,8% hlut af Íslandsbanka hf. og Skilanefnd Glitnis. Að því gefnu að kaupréttir í N1 verði nýttir mun Framtakssjóður Íslands fara með tæplega 45% eignarhlut í N1. Stefnt er að skráningu N1 í kauphöll ekki seinna en á miðju ári 2013.

Finnbogi Jónsson, framkvæmdastjóri Framtakssjóðs Íslands: „Það er ánægjulegt að Framtakssjóðurinn hafi fengið tækifæri til að auka enn frekar eignarhlut sinn í N1 og þar með koma með sterkum hætti að mikilvægu fyrirtæki í íslensku efnahagslífi sem undanfarið hefur að langstærstum hluta verið í eigu banka. N1 hefur alla burði til að standa sig vel í öflugri samkeppni á neytenda- og fyrirtækjamarkaði á komandi árum. Við munum leggja áherslu á að bæta rekstur félagsins enn frekar og koma síðan félaginu á hlutabréfamarkað með dreifðu eignarhaldi.“

Höskuldur H. Ólafsson, forstjóri Arion banka: „N1 er stærsta félag sinnar tegundar á Íslandi og gegnir mikilvægu þjónustuhlutverki um land allt. Markmið bankans í fjárhagslegri endurskipulagningu félagsins var að tryggja áframhaldandi rekstur þess og það markmið hefur nú náðst. Arion banki ætlaði sér aldrei að vera langtíma eigandi félagsins og telur mikilvægt að koma félaginu sem fyrst í almenna eigu. Þau áform hafa nú gengið eftir með sölunni á N1 til Framtakssjóðsins sem er í eigu nokkurra lífeyrissjóða landsins. Arion banki telur mjög mikilvægt að skrá á markað þau félög sem þar eiga heima í því augnamiði að endurreisa íslenska hlutabréfamarkaðinn. Sú ákvörðun sem nú liggur fyrir að hálfu Framtakssjóðsins um skráningu N1 á markað var ein af meginforsendum fyrir sölu bankans á sínum hlut. Við teljum þetta góða niðurstöðu fyrir bankann og N1.“

Eftir viðskiptin á Arion banki hf. ekki hlut í N1. Viðskiptin eru gerð með fyrirvara um niðurstöðu áreiðanleikakönnunar og samþykki Samkeppniseftirlits.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira