30.10.2009

Frest­ur vegna ákvörð­un­ar um Nýja Kaupþing lengd­ur út nóv­em­ber

Fjármálaráðuneytið og skilanefnd Kaupþings hafa orðið ásátt um að lengja frest skilanefndarinnar til að taka endanlega ákvörðun um aðkomu kröfuhafa Kaupþings að Nýja Kaupþingi til 30. nóvember nk.

Samningar milli stjórnvalda og skilanefndarinnar, sem undirritaðir voru 3. september sl. kveða á um að í síðasta lagi 31. október 2009 liggi fyrir ákvörðun skilanefndarinnar um hvort Kaupþing eignist 87% hlutafjár í Nýja Kaupþingi strax eða hvort Nýja Kaupþing verði áfram að fullu í eigu ríkisins, en Kaupþing ætti möguleika á að eignast allt að 90% hlutafjár í bankanum á síðari stigum.

Það er mat samningsaðila að aukinn tíma þurfi til kostgæfniathugunar áður en skilanefndin tekur afstöðu í málinu. Meðal annars liggja ekki fyrir endanlegar fjárhagsupplýsingar fyrir árið 2008, né fyrstu níu mánuði ársins 2009. Þær upplýsingar hyggst Nýja Kaupþing afhenda innan tíðar.

Ákvörðun fjármálaráðuneytisins er tekin að höfðu samráði við yfirstjórn og endurskoðanda Nýja Kaupþings.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira