01.12.2009

Frétta­tilkynning frá fjármála­ráðu­neyt­inu og skila­nefnd Kaupþings

Samkomulag um eignarhald á Arion banka:

Kröfuhafar eignast 87% hlutafjár í Arion banka

- Skilanefnd Kaupþings leggur fram 66 milljarða í stað ríkisins

Skilanefnd Kaupþings hefur að höfðu samráði við kröfuhafa og að teknu tilliti til ráðgjafar sérfræðinga ákveðið að Kaupþing og þar með kröfuhafar eignist 87% hlutafjár í Arion banka. 13% hlutafjár verða áfram í eigu ríkisins. Skilanefndin telur að virkt eignarhald í Arion banka muni hámarka verðmæti þeirra eigna sem fluttar voru á milli bankanna í október 2008. Við fjármögnun bankans skuldbatt ríkið sig til að leggja bankanum til 72 milljarða króna í eigið fé. Í samkomulaginu um eignarhald bankans felst að skilanefnd Kaupþings leggur fram 66 milljarða í stað ríkisins.

Helstu atriði:

  • Kröfuhafar Kaupþings eignast 87% í Arion banka en 13% verða áfram í eigu ríkisins.

  • Skilanefnd leggur fram 66 milljarða eigið fé í stað ríkisins.

  • Arion banki stendur á traustum grunni, hefur á að skipa hæfu starfsfólki með mikla þekkingu og er velgengni bankans samofin hagsmunum kröfuhafa.

  • Arion banki heyrir áfram að öllu leyti undir íslensk lög og íslenskar eftirlitsstofnanir.

  • Skilanefnd Kaupþings skipar fjóra stjórnarmenn í nýja stjórn Arion banka og ríkið einn.

  • Arion banki verður sjálfstætt starfandi dótturfélag Kaupþings.

  • Í krafti tengsla við erlenda kröfuhafa getur Arion banki eflt tiltrú erlendra aðila á íslenskan fjármálamarkað og verið í forystu við uppbyggingu efnahagslífsins.

Hlutafé Arion banka er rúmlega 72 milljarðar króna og eiginfjárþáttur A er 12%. Bankinn er fullfjármagnaður og lausafjárstaða hans traust. Bankinn hefur skilað jákvæðri rekstrarniðurstöðu frá stofnun í október 2008. Með aðkomu skilanefndar verður Arion banki öflugur banki og vel í stakk búinn til að leiða uppbyggingu íslensks efnahagslífs, einstaklingum og fyrirtækjum í landinu til góða. Í samkomulagi við ríkið felst að ríkið leggur Arion banka til víkjandi lán í erlendri mynt sem hækkar eiginfjárgrunn hans í 16%.

Morgan Stanley er fjármálaráðgjafi skilanefndar vegna uppgjörs milli Kaupþings og Arion banka, en íslenska ríkið naut aðstoðar ráðgjafarfyrirtækisins Hawkpoint. Samráð var haft við fulltrúa kröfuhafa í ákvörðunarferlinu og fengu þeir aðgang að upplýsingum til að framkvæma eigin áreiðanleikakannanir. Auk þess tóku fulltrúar þeirra þátt í samningaviðræðum við ríkið.

Steinar Þór Guðgeirsson, formaður skilanefndar Kaupþings:
„Það er mat okkar að hagur kröfuhafa sé best tryggður með því að eiga meirihluta hlutafjár í Arion banka. Með virkum eignarhlut og aðild að stjórn bankans er skilanefndin í aðstöðu til að efla bankann enn frekar. Tengsl við erlenda kröfuhafa gera okkur kleift að byggja fyrr upp traust milli erlendra og innlendra fjármálastofnana. Í samningaferlinu lagði skilanefndin mikla áherslu á að kröfuhafar hefðu valkosti og að þeir hefðu tækifæri til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri. Niðurstaðan endurspeglar traust til Arion banka og þess hæfa starfsfólks sem þar starfar. Með ákvörðuninni hefur óvissu verið eytt og við getum nú beitt okkur af fullum krafti að þeirri endurreisn sem framundan er í íslensku efnahagslífi.“

Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra:
„Það er fagnaðarefni að Kaupþing hafi ákveðið að gerast ráðandi hluthafi í Arion banka og mikilvægt er að fjárútlát ríkissjóðs verða miklum mun minni en annars hefði verið. Bankinn er fullfjármagnaður og stendur því á traustum fjárhagslegum grunni og er sem slíkur verðugur hluti af nýju íslensku fjármálakerfi. Hann á að vera þess albúinn að takast á við fjárhagslega endurskipulagningu þeirra fyrirtækja sem eru í viðskiptum við hann og bjóða einstaklingum og heimilum í skuldavanda þau úrræði sem til boða eiga að standa.“

Ákvörðun skilanefndar er háð samþykki Fjármálaeftirlitsins og Samkeppniseftirlitsins. Skilanefnd Kaupþings fer með eignarhald bankans fyrir hönd kröfuhafa í gegnum sérstakt eignarhaldsfélag og Arion banki verður því sjálfstætt dótturfélag. Skilanefnd skipar fjóra stjórnarmenn bankans af fimm en íslenska ríkið skipar einn. Stefnt er að því að fulltrúar skilanefndar í nýrri stjórn verði tveir erlendir og tveir innlendir sérfræðingar, þar af einn úr skilanefnd. Ný stjórn bankans verður skipuð þegar samþykki Fjármálaeftirlitsins og Samkeppniseftirlitsins liggur fyrir.


Aðdragandi
Skilanefnd Kaupþings og íslenska ríkið undirrituðu samninga um uppgjör á milli Kaupþings og Arion banka hinn 3. september sl. Samningarnir fólu í sér tvo möguleika fyrir skilanefnd Kaupþings: Annars vegar að Kaupþing eignaðist 87% hlutafjár íslenska ríkisins í Arion banka og þá yrði hlutur ríkisins 13%. Hins vegar að Kaupþing hefði þann kost að taka ekki þátt í fjármögnun bankans að svo stöddu en hefði þess í stað kauprétt á allt að 90% hlutafjár sem yrði virkur á árunum 2011-2015.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira