04.06.2014

Frjálsi lífeyris­sjóðurinn fær al­þjóð­leg verð­laun fyrir fasteigna­fjár­festingar

Frjálsi lífeyrissjóðurinn hefur verið valinn besti fagfjárfestir í fasteignafjárfestingum á meðal 40 þjóða Evrópu af fagtímaritinu IPE Real Estate.

Í umsögn dómnefndar segir meðal annars að sjóðurinn hefði brugðist tímanlega við breytingum í fjárfestingarumhverfinu með því að nýta tækifæri á fasteignamarkaði og þannig náð að hámarka virði eignasafnsins í erfiðum markaðsaðstæðum.

IPE Real Estate, sem sérhæfir sig í umfjöllun um fasteignafjárfestingar, veitir árlega fagfjárfestum viðurkenningar fyrir framúrskarandi árangur í fasteignafjárfestingum. Veitt eru m.a. svokölluð landaverðlaun fyrir fjárfesta í Bretlandi, Skandinavíu, Benelux löndunum, Austurríki, Þýskalandi og Sviss og löndum utan Evrópu. Frjálsi lífeyrissjóðurinn keppti í flokknum „Önnur lönd Evrópu“ en þau eru um 40 talsins og voru t.d. lífeyrissjóðir frá Ítalíu og Spáni tilnefndir til verðlauna í flokknum.

Hér eru upplýsingar um verðlaunahafana http://realestate.ipe.com/awards/winners-2014/.

Á undanförnum árum hefur Frjálsi lífeyrissjóðurinn aukið vægi fasteignatengdra fjárfestinga til að bregðast við skorti á fjárfestingarkostum og auka áhættudreifingu sjóðsins. Markmið sjóðsins er að fjárfesta í vel staðsettu atvinnuhúsnæði með traustum leigutökum og langtíma leigusamningum. Fasteignafjárfestingar sjóðsins hafa reynst mikilvægur þáttur í árangri sjóðsins.

Frjálsi lífeyrissjóðurinn, sem er í rekstri hjá Arion banka, er um 136 milljarðar að stærð og sjóðfélagar eru um 50 þúsund talsins. Sjóðurinn hentar þeim sem hafa frjálst val um í hvaða lífeyrissjóð þeir greiða 12% skylduiðgjald og hentar jafnframt þeim sem leggja fyrir í viðbótarlífeyrissparnað.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira