08.12.2010

Frjálsi lífeyris­sjóðurinn val­inn besti lífeyris­sjóður á Ís­landi

Frjálsi lífeyrissjóðurinn hefur verið valinn besti lífeyrissjóður á Íslandi annað árið í röð af fagtímaritinu Investment Pension Europe (IPE).

Í umsögn dómnefndar kemur meðal annars fram að eignastýring Frjálsa lífeyrissjóðsins hafi gengið vel þrátt fyrir erfiðar markaðsaðstæður. Jafnframt hafi sjóðurinn aukið gagnsæi í fjárfestingum og eflt samskipti við sjóðfélaga til að upplýsa þá sem best um stöðu sjóðsins.

Frjálsi lífeyrissjóðurinn hefur áður unnið IPE-verðlaun. Í fyrra fékk sjóðurinn sömu verðlaun sem besti lífeyrissjóður á Íslandi og árið 2005 var sjóðurinn valin besti lífeyrissjóður Evrópu í flokknum Uppbygging lífeyrissjóða .

Frjálsi lífeyrissjóðurinn, sem er í rekstri hjá Arion banka, er um 90 milljarðar að stærð og sjóðfélagar eru rúmlega 40.000. Sjóðurinn hentar þeim sem hafa frjálst val um í hvaða lífeyrissjóð þeir greiða 12% lágmarksiðgjald og jafnframt hentar hann þeim sem vilja ávaxta viðbótarlífeyrissparnað sinn.

IPE er eitt virtasta fagtímarit Evrópu um lífeyrismál. Árlega veitir tímaritið þeim lífeyrissjóðum verðlaun sem að mati sérfræðinga IPE hafa skarað fram úr í sínu heimalandi og í Evrópu. Hollenski lífeyrissjóðurinn ABN AMRO var valinn besti lífeyrissjóður í Evrópu að þessu sinni.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira