22.11.2009

Frjálsi lífeyris­sjóðurinn val­inn besti lífeyris­sjóður á Ís­landi

Það er okkur sönn ánægja að greina frá því að Frjálsi lífeyrissjóðurinn var valinn besti lífeyrissjóður á Íslandi af fagtímaritinu Investment Pension Europe (IPE) á árlegri verðlaunahátíð sem fram fór í Dublin á Írlandi 18. nóvember sl.

Jafnframt var sjóðurinn valinn næstbesti lífeyrissjóður í Evrópu af lífeyrissjóðum sem eru minni en 1 milljarður evra (183 milljarðar kr.) að stærð og næstbesti lífeyrissjóðurinn í Evrópulöndum sem eru með færri en 1 milljón íbúa.

Í umsögn dómnefndar kom m.a. fram að Frjálsa lífeyrissjóðnum hefði tekist að vernda hagsmuni sjóðfélaga í erfiðum markaðsaðstæðum með því að minnka áhættu sjóðsins í fjárfestingum en það fól m.a. í sér að auka hlutfall verðtryggða ríkisskuldabréfa í eignasafni sjóðsins. Jafnframt vakti dómnefndin athygli á uppbyggingu sjóðsins og þeirri ákvörðun hans að auka gagnsæi.

Frjálsi lífeyrissjóðurinn hefur áður unnið IPE-verðlaun. Árið 2005 var sjóðurinn valin besti lífeyrissjóður Evrópu í flokknum Uppbygging lífeyrissjóða.

Frjálsi lífeyrissjóðurinn, sem er í rekstri hjá Arion banka, er um 75 milljarðar að stærð og sjóðfélagar eru rúmlega 43.000 talsins. Sjóðurinn hentar þeim sem hafa frjálst val um í hvaða lífeyrissjóð þeir greiða 12% lágmarksiðgjald og jafnframt hentar hann þeim sem vilja ávaxta viðbótarlífeyrissparnað í sjóðnum.

IPE er eitt virtasta fagtímarit Evrópu um lífeyrismál. Árlega fer fram verðlaunaafhending þar sem tímaritið verðlaunar lífeyrissjóði sem hafa skarað fram úr í sínu heimalandi og í Evrópu. Danski lífeyrissjóðurinn ATP var valinn besti lífeyrissjóður í Evrópu að þessu sinni. Á verðlaunahátíðinni, sem nú var haldin í 9. sinn, voru um 500 manns, þ.m.t. Brian Cowen forsætisráðherra Írlands, og fulltrúar lífeyrissjóða frá 30 löndum í Evrópu. Samkvæmt IPE er verðlaunahátíðin talin stærsta samkoma lífeyrissjóða í Evrópu ár hvert.

Nánari upplýsingar um Frjálsa lífeyrissjóðinn veitir Lífeyrisþjónusta Arion banka í síma 444-7000 og starfsfólk í útibúum bankans. Einnig má nálgast upplýsingar um sjóðinn á frjalsilif.is.

Arnaldur Loftsson, framkvæmdastjóri Frjálsa lífeyrissjóðsins, tekur við verðlaununum í Dublin.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira