13.05.2014

Frjálsi lífeyris­sjóðurinn val­inn lífeyris­sjóður ársins á Ís­landi

Frjálsi lífeyrissjóðurinn hefur verið valinn lífeyrissjóður ársins á Íslandi af fagtímaritinu Acquisition International. Þetta kemur fram í sérstakri útgáfu tímaritsins um verðlaunin sem eru veitt á hverju ári þeim sem þykja hafa skarað fram úr á sínu sviði sl. 12 mánuði.

Það sem dómnefndin leit til við val sitt á sjóðnum var m.a. uppbygging sjóðsins þar sem sjóðfélagar geta ráðstafað skylduiðgjöldum sínum í samtryggingarsjóð og séreignarsjóð, fjölbreyttir valkostir í útgreiðslum fyrir sjóðfélaga og mikil fjölgun sjóðfélaga þrátt fyrir frjálsa aðildarskyldu að sjóðnum. Jafnframt að sjóðnum hefði tekist að verja hagsmuni sjóðfélaga við erfiðar aðstæður á fjármálamörkuðum.

Acquisition International er alþjóðlegt tímarit um fjármál sem er gefið út mánaðarlega í 53 þúsund eintökum. Með því að smella hér má sjá verðlaunaútgáfu tímaritsins.

Frjálsi lífeyrissjóðurinn, sem er í rekstri hjá Arion banka, er rúmlega 136 milljarðar að stærð og sjóðfélagar eru tæplega 50 þúsund talsins. Sjóðurinn hentar þeim sem hafa frjálst val um í hvaða lífeyrissjóð þeir greiða 12% skylduiðgjald og hentar jafnframt þeim sem leggja fyrir í viðbótarlífeyrissparnað.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira