18.10.2012
Frumkvöðlar eru framtíðin
Arion banki kynnir vörur sínar og þjónustu sem tengist nýsköpun á ráðstefnunni Frumkvöðlar eru framtíðin sem haldin er í Salnum í Kópavogi í dag.
Arion banki styður á margvíslegan hátt við nýsköpun og frumkvöðla á Íslandi og má þar nefna verkefnið Startup Reykjavík sem felst í að fjárfesta í frumkvöðlum, leiðbeina þeim í 10 vikur og kynna þá að lokum fyrir fjárfestum. Þá er Arion banki einnig stærsti stuðningsaðili Sprotaþings Íslands, helsta vettvang íslenskra sprotafyrirtækja til að kynna sig fyrir fjárfestum en Sprotaþing er haldið tvisvar á ári í húsakynnum bankans.
Kynnið ykkur nýsköpun Arion banka hér.