23.08.2013
Frumkvöðlar og fjárfestar leiddir saman í dag
Stóri dagurinn er runninn upp í lífi þátttakenda í Startup Reykjavík 2013, en í dag kynna þeir viðskiptahugmyndir sínar fyrir fjárfestum í höfuðstöðvum Arion banka. Hinn svokallaði fjárfestadagur er í dag og er margt um manninn í Borgartúni 19. Höskuldur H. Ólafsson bankastjóri Arion banka opnaði viðburðinn og að því loknu ávarpaði forseti Íslands gesti í Þingvöllum. Hófu frumkvöðlarnir því næst upp raust sína hver á fætur öðrum og er áætlað að kynningunum ljúki á hádegi.
Þetta er í annað sinn sem Arion banki stendur fyrir Startup Reykjavík í samstarfi við Klak Innovit og verður fróðlegt að sjá hvernig teymunum tíu sem valin voru í ár muni vegna í framtíðinni. Nú þegar hafa nokkur teymanna sem tóku þátt í Startup Reykjavík 2012 hlotið styrki frá Tækniþróunarsjóði en þegar teymi er valið til þátttöku í Startup Reykjavík hlýtur það sprotafjármögnun frá bankanum í formi hlutafjár. Arion banki hefur því á rúmu ári fjárfest í 20 sprotafyrirtækjum.