13.09.2011
Fullbókað á öll námskeið í Meniga - fleiri námskeiðum hefur verið bætt við
Arion banki kynnti um helgina byrjendanámskeið í notkun Meniga heimilisbókhaldsins.
Viðtökurnar voru frábærar og varð strax fullbókað á fyrstu námskeiðin.
Enn fleiri námskeiðum hefur nú verið bætt við og verða þau haldin í tölvuveri Háskólans í Reykjavík og víða um landið.
Við hvetjum ykkur til þess að fylgjast vel með ef þið viljið tryggja ykkur sæti.
Þökkum góðar viðtökur!