11.03.2009
Fyrirframgreiðsla viðbótarlífeyrissparnaðar
Alþingi hefur samþykkt lög þess efnis að á tímabilinu 1. mars 2009 til 1. október 2010 verði heimilt að óska eftir fyrirframgreiðslu viðbótarlífeyrissparnaðar.
Hámarksfjárhæð fyrirframgreiðslu er 1 milljón kr. fyrir skatt og greiðist hún út með jöfnum mánaðarlegum greiðslum á 9 mánuðum. Lægri fjárhæð dreifist á hlutfallslega styttri tíma.
Hægt er að sækja um skriflega í næsta útibúi Kaupþings frá og með 18. mars nk. Stefnt er að því að fyrsta fyrirframgreiðsla verði 20. apríl og skiptir þá ekki máli hvenær á tímabilinu 18. mars til 5. apríl sótt er um.