08.06.2009
Fyrirvarar um betri rétt neytenda eru óþarfir
Nokkuð er um að viðskiptavinir bankans vilji skrá inn á skilmálabreytingar húsnæðislána fyrirvara um betri rétt neytenda. Erfiðleikar hafa verið við þinglýsingu slíkra skjala vegna þeirrar óvissu sem fyrirvarinn veldur. Til að leysa þennan vanda og tryggja jafnræði þeirra viðskiptavina sem gera fyrirvara og þeirra sem gera það ekki hefur Nýi Kaupþing banki í samráði við talsmann neytenda ákveðið að gefa út eftirfarandi yfirlýsingu:
Nýi Kaupþing banki lýsir því yfir að þeir viðskiptavinir bankans sem undirrita skilmálabreytingar húsnæðislána, t.d. vegna greiðslujöfnunar og frystingar, fyrirgeri ekki réttindum sínum til að óska eftir öðrum úrræðum síðar, þ.e. úrræðum sem þegar eru til staðar eða úrræðum sem bjóðast í framtíðinni, enda uppfylli þeir skilyrði fyrir nýtingu úrræðanna. Sama gildir um önnur réttindi sem neytendur kunna að njóta samkvæmt lögum.
Gísli Tryggvason, talsmaður neytenda, fagnar því að bankinn taki slíkt frumkvæði til þess að tryggja jafnræði neytenda og greiða fyrir því að neytendur geti nýtt sér tiltæk úrræði án þess að fyrirgera hugsanlegum betri rétti sínum ef á hann reynir síðar.