04.09.2014

Gjald­ker­arnir okk­ar

Við höfum fengið nokkuð sterk viðbrögð við fréttum af hugsanlegri gjaldtöku vegna þjónustu gjaldkera. Það er gott að finna að viðskiptavinir okkar kunni að meta gjaldkerana okkar og þá þjónustu sem þeir veita.

Rétt er að taka fram að engar hækkanir vegna þjónustu gjaldkera eru að fara af stað á næstu dögum eða vikum. Hins vegar er það rétt sem kom fram í fjölmiðlum að unnið er að endurskoðun á tilteknum þáttum í gjaldskrá bankans, þar með talið þjónustu gjaldkera.

Í þessari vinnu horfum til þess að öll gjaldtaka sé sanngjörn, gegnsæ og valkvæð. Sanngjörn þannig að þeir greiði fyrir þjónustuna sem nýta hana – ekki aðrir. Gegnsæ þannig að viðskiptavinum sé ljóst hvað hver þjónustuþáttur kostar. Og valkvæð þannig að viðskiptavinir okkar geti einnig valið að nýta sér aðrar þjónustuleiðir s.s. appið, netbankann eða hraðbanka í stað þess að greiða gjald fyrir þjónustu gjaldkera. Einnig höfum við í huga sérstöðu tiltekinna hópa, s.s. eldri borgara.

Viðbrögð okkar viðskiptavina síðustu daga hafa ekki farið framhjá okkur og munum við taka tillit til þeirra við endurskoðun á gjaldskrá bankans.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira