23.10.2012
Glæsilegur árangur Íslands í hópfimleikum
Stúlkna- og kvennalandslið Íslands í hópfimleikum sigruðu á Evrópumeistaramótinu í hópfimleikum sem fram fór í Árósum í Danmörku um síðastliðna helgi.
Fimleikalandsliðin og þjálfarar þeirra voru heiðruð með móttöku í höfuðstöðvum Arion banka í gær, en Arion banki er aðalstyrktaraðili Fimleikasambands Íslands.
Við óskum þeim innilega til hamingju með glæsilegan árangur.