29.01.2010

Góð ávöxt­un viðbótar­lífeyris­sparnaðar ár­ið 2009

Ávöxtun Lífeyrisauka og Vista var mjög góð á árinu 2009 miðað við markaðsaðstæður. Leiðir 1 í báðum sjóðunum skiluðu mjög góðri ávöxtun á árinu, 24,6% í Vista og 25,8% í Lífeyrisauka. Há ávöxtun þessara leiða skýrist m.a. af mikilli hækkun á erlendum hlutabréfum sem hafa mikið vægi í þessum fjárfestingarleiðum. Hæsta ávöxtun beggja sjóðanna var í leiðinni Erlend verðbréf, af sömu ástæðu og áður er talin.

Rétt að horfa á ávöxtun yfir lengri tímabil

Þar sem lífeyrissparnaður er í eðli sínu hugsaður til langs tíma er rétt að skoða ávöxtun yfir lengra tímabil, og er oft horft til fimm ára í þessu samhengi. Ávöxtun Lífeyrisauka og Vista hefur verið góð síðustu fimm árin þrátt fyrir það mikla umrót sem verið hefur á fjármálamörkuðum undanfarin misseri. Því ber þó ekki að neita að hrun bankanna og fall á erlendum verðbréfamörkuðum setur svip sinn á ávöxtun sjóðanna á þessu tímabili.

Ávöxtun í fortíð gefur ekki áreiðanlega vísbendingu um ávöxtun í framtíð. Myndin sýnir 5 ára meðalnafnávöxtun áranna 2005-2009 en ávöxtunin er mismunandi á milli ára.

    Deila grein:

    facebookxmaillinkedin

    Fleiri fréttir

    Fréttayfirlit
    20. október 2026

    Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

    Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

    Lesa meira
    15. október 2026

    Arion banki á Arctic Circle

    Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

    Lesa meira
    14. október 2026

    Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

    Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

    Lesa meira